Halló allirLeikskólinn 101

Halló allirLeikskólinn 101

Ívar Kristján og Oddný voru að hætta hjá okkur við þökkum þeim fyrir samveruna.´

Arna var að byrja hjá okkur og við bjóðum hana velkomna.

Minnum á nýjar myndir frá útiveru á myndasíðunni.

Góða helgi og takk fyrir vikuna.

Halló allirLeikskólinn 101

Auður Erna, Embla Sólveig og Katla hættu hjá okkur í júní, við þökkum þeim fyrir samveruna og óskum þeim góðs gengis á nýjum slóðum.

Einar Már, Elmar Logi, Kristín Hrefna og Kári Steinn eru byrjuð hjá okkur við bjóðum þau velkomin.

Það eru komnar inn nýjar myndir frá útiveru í júní.

Minnum alla á sólarvörnina.
 
Sumarkveðja starfsfólk.
 

Sumar og sól !Leikskólinn 101

Jæja þá er nú loksins komið vor hjá okkur, hlýnað hefur í veðri og þess vegna þarf að koma með léttari útiföt, þunnar húfur, létta skó ásamt stígvélum, vindgalla, pollagalla, flís eða ullarpeysur .

Hópastarfið er komið í sumarfrí eftir skemmtilega hópavinnu í vetur.

Ylfa Vár er hætt hjá okkur. Úlfur hættir eftir þessa viku. Við þökkum þeim samveruna og óskum þeim góðs gengis á nýjum slóðum.

Tvö ný börn eru byrjuð hjá okkur það eru þau Óliver og Katrín, við bjóðum þau velkomin.

Sveitaferð í boði foreldrafélagsins verður laugardaginn 21. maí. Farið verður að Miðdal í Kjós. Mæting er á staðinn kl. 13:30.
Munið eftir að skrá ykkur á blaðið sem hangir við sumarfrístöfluna.

Það eru komnar inn nýjar myndir.

Sumarkveðja.
Starfsfólk Cool

Gleđilega páska !Leikskólinn 101


Gleðilegt sumar og hafið það gott um páskana Cool

Takk fyrir vikuna.

Halló allirLeikskólinn 101

Margrét Helga átti 2 ára afmæli þann 1. apríl við óskum henni til hamingju með daginn.

Nú er orðin meiri útivera, endilega hafið góð útiföt með börnunum.

Góða helgi og takk fyrir vikuna.

Sćl öll !Leikskólinn 101

Í þessari viku átti Ylfa Vár 2ja ára afmæli. Við óskum henni til hamingju með daginn.

Það hefur verið lítil útivera upp á síðkastið vegna þess að það hefur verið of mikill snjór í garðinum. Vonandi viðrar vel á okkur í næstu viku svo að við getum farið að vera meira úti.

Takk fyrir vikuna og góða helgi Laughing
  

Halló !Leikskólinn 101

Í þessari viku byrjaði Vilhjálmur Einar hjá okkur og bjóðum við hann velkominn til okkar.

Katrín Rán á 1. árs afmæli á morgun og óskum við henni til hamingju með daginn.

Hópastarfið gekk mjög vel. Allir duglegir í sínum verkefnununum.

Takk fyrir vikuna og góða helgi Smile

Leikskólinn 101

Þetta er búin að vera skemmtileg vika hjá okkur í leikskólanum. Hún byrjaði með bolluáti síðan var það saltkjöt og baunir og á Öskudag komu Skoppa og Skrítla til okkar með sýningu sem allir höfðu gaman að.

Að sýningu lokinni var kötturinn sleginn úr tunnunni (kassanum) og komu þá nammipokar í ljós sem innihéldu Cheerios og rúsínur og vakti það mikla lukku hjá börnunum.

Í hópastarfi vikunnar var ýmislegt gert og eru komnar inn myndir af því á myndasíðuna.

Takk fyrir vikuna og góða helgi Laughing

Sćl öll !Leikskólinn 101


Ísold Emma átti 2ja ára afmæli 27. febrúar og óskum við henni til hamingju með daginn.

Atli Valur var að hætta hjá okkur og þökkum við honum fyrir samveruna og óskum honum góðs gengis í nýja leikskólanum.

Öskudagur.
Á miðvikudaginn er öskudagur. Þá koma Skoppa og Skrítla til okkar og byrjar sýningin kl. 9:15. Börnin þurfa þvi að mæta stundvíslega
ekki seinna en kl. 9:00.
Sýningin er í boði foreldrafélagsins og eru þeir sem enn hafa ekki greitt í sjóðinn beðnir um að gera það sem fyrst. Upplýsingar um foreldrafélagsreikninginn eru hér til hliðar undir foreldrafélag.
Börnin mega koma í náttfötum eða grímubúning. Eftir sýninguna um kl. 10 sláum við svo köttinn úr tunnunni.

Góða helgi :)

Hagnýtar upplýsingar

Auglýsing

Könnunarleikur

Myndaalbúm NÝTT

Foreldrafélag

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur